Rafbíll, eyðsla og drægni

Ef þú ert að velta fyrir þér að kaupa rafbíl er drægið líklega eitt af þeim atriðum sem þú hugleiðir mest áður en þú tekur ákvörðun. Fyrir þá sem hafa litla eða enga reynslu af rafbílum getur verið auðvelt að ruglast í öllum upplýsingunum um drægi. Óvissan verður ekki minni þegar fólk deilir eigin reynslu, sumir segja bíla sína ná lengra en gefið er upp, á meðan aðrir upplifa að drægið sé styttra.